Nú hefur einn háttvirtur meðlimur keppnisnefndar flúið til útlanda og því eru bara fjórir eftir í nefndinni. Því auglýsir nefndin eftir nefndarmanni eða -mönnum því ekkert í lögum Kayakklúbbsins segir til um hámarksfjölda í nefndum. Starfið felst í að halda Reykjavíkurbikar, Hvammsvíkurmaraþon, Elliðaárródeó, Tungufljótskappróðurinn (Gummi J. sér vonandi um hann eins og í síðustu tvö sumur) og Haustródeó. Létt verk og löðurmannlegt.
Áhugasamir hafi samband við Rúnar, runar.palmason@gmail.com.