17 bátar hófu róður frá Geldinganesi. Róið var meðfram landi að Fjósaklettum þaðan var haldið suðurfyrir Viðey og tekið kaffistopp fyrir neðan Viðeyjarstofu. Nokkrir nýliðar voru í þessum róðri og þá þegar höfðu tvö snúið við í fylgd Gumma B við Fjósakletta. Nú var hópnum skipt í tvennt, þau sem voru í sínum fyrsta róðri snéru við í fylgd Magga, Gumma og Lárusar en þeir alhörðustu
kláruðu hringinn. Smá ólga var vestan við Viðey sem náði að hvolfa einum ræðara en honum var bjargað knálega.
Eitthvað fyrir alla í þessum róðri