Klúbbtjaldið

15 maí 2011 20:57 - 15 maí 2011 20:58 #1 by Reynir Tómas Geirsson
Sæl öll, ég vil láta ykkur vita að klúbbtjaldið (græna topptjaldið), sem var í þurrkun og geymslu í vetur hjá mér, er nú komið inn í geymslugáminn okkar og er í góðum sjópoka til að vernda það fyrir raka og hnjaski. Húsnæðisnefnd eða ferðanefnd vilja kannski koma því betur fyrir þarna inni eða annars staðar. Ég setti það þarna nú, þar sem ég er erlendis í nokkra mánuði og það þarf að vera aðgengilegt (kem þó í lok júlí í Breiðafjarðarferðina). Þeir sem nota það ættu þó að gera það í samráði við viðeigandi aðila í stjórn eða ofangreindum nefndum. Kveðja og ég óska ykkur góðs róðrarsumars! :) Reynir Tómas

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum