Félagsróður 30/06´11

02 júl 2011 16:27 #1 by GUMMIB
Replied by GUMMIB on topic Re: Félagsróður 30/06´11
Félagsróður 30.06.2011

Jæja hérna kemur loks skýrslan. Sól og blíða í upphafi róðurs, 25 bátar á sjó nokkur ný andlit.

Róið suður fyrir Viðey og tekið land á eyðinu fræga. Þar var ákveðið að taka sömu leið til baka þó hringun væri inn í myndinni en eyða í staðinn smá tíma í veltur og félagabjarganir við Fjóskletta.

Á bakaleiðinni var komin létt vindátt á móti og dregið fyrir sólu. Við Fjósaklettana fóru síðan nokkrir í sjóinn sumir í fyrsta sinn og fór allt sómasamlega fram.

Kv.
Gummi B.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

01 júl 2011 21:07 #2 by Þorbergur
Hér eru myndir frá róðri gærkvöldsins:

picasaweb.google.com/110567789326343745301/FelagsroUr300611

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum