Ládautt

08 júl 2011 00:41 #1 by Gíslihf
Replied by Gíslihf on topic Re: Ládautt
Það var sem mig grunaði, að elstu menn myndu betur en ég.

Það var hins vegar ládautt og gráð með köflum við Fjósakletta og Viðey hjá okkur Lilju í kvöld og einnig hjá þeim sem voru í félagsróðri.

Nú þegar Sævar er búinn að reka ofan í mig villur tvisvar, minnist ég sögu sem ég heyrði í Vestm. af þekktum smiði sem vann við að smíða grunn og neðstu hæð nýja sjúkrahússins rétt fyrir gos. Eitthvað passaði ekki það sem hann hafði mælt og skeikaði nokkru í breidd eins herbergis.
"Hvað munar um tommu í heilu húsi" sagði hann þá.

Kv. GHF.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

07 júl 2011 19:36 #2 by Sævar H.
Replied by Sævar H. on topic Re: Ládautt
Gíslihf wrote:

7.7.2011 kl. 12./ghf

Það er gott í sjóinn nú við landið. Hæsta talan er 1,4 m við Surtseyjardufl og gott veður fyrir hraðferð umhverfis landið, þvert yfir Faxaflóa og Breiðafjörð eins og sumir hafa gert!

Garðskagadufl sýnir 0,0 m nú kl. 12 og það hef ég aldrei séð áður, þótt mín orð gildi ekki enn um það sem "elstu menn muna".

Skv. töflu um heiti á sjólagi fyrir ölduhæð, eru
0 m ládautt
0 - 0,1 m gráð
0,1 - 0,5 m sjólítið
0,5 - 1,25 m dálítill sjór

Kveðja, GHF.


Vegna sjómennsku minnar hér innan Faxaflóa er Garðskagaduflið mér einkar nákomið. Því miður hefur það verið óvirkt til ölduhæðarupplýsinga nú í nokkra daga- verið úti.

Það er því ekki ládautt-heldur bara steindautt.

Kveðja Sævar H.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

07 júl 2011 12:21 #3 by Gíslihf
Ládautt was created by Gíslihf
7.7.2011 kl. 12./ghf

Það er gott í sjóinn nú við landið. Hæsta talan er 1,4 m við Surtseyjardufl og gott veður fyrir hraðferð umhverfis landið, þvert yfir Faxaflóa og Breiðafjörð eins og sumir hafa gert!

Garðskagadufl sýnir 0,0 m nú kl. 12 og það hef ég aldrei séð áður, þótt mín orð gildi ekki enn um það sem "elstu menn muna".

Skv. töflu um heiti á sjólagi fyrir ölduhæð, eru
0 m ládautt
0 - 0,1 m gráð
0,1 - 0,5 m sjólítið
0,5 - 1,25 m dálítill sjór

Kveðja, GHF.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum