Félagsróður 7. júlí 2011

08 júl 2011 12:36 #1 by Þóra
26 ræðarar, sem er samkvæmt áreiðanlegum heimildum met í ár, nýttu sér blíðuna í gærkvöldi og réru saman hinn vikulega félagsróður. Veðrið lék við okkur og ákveðið var að fara Viðeyjarhring með möguleika á bátaburði við eyðið sem nokkrir nýttu sér. Nokkrir voru að fara í sinn fyrsta róður og fengu topp aðstæður til þess. Bjarganir veltur og annað sull var tekið við veiðibryggjuna við mikinn fögnuð.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum