Svunta á frúna

29 júl 2011 19:38 - 29 júl 2011 19:46 #1 by Gíslihf
Svunta á frúna was created by Gíslihf
Var að fá svuntu á frúna sem ég pantaði frá IR í USA og er ekki í frásögur færandi. Það er hins vegar dýrt að vera Íslendingur eins og þetta dæmi sýnir:
Svunta í USA 12000
Burðargjald 4500
Tollur 2500
Vsk 4500
Tollmeðferð 500
Samtals í hús 24000

Skattur/útsvar 12000 (meðaltal m.t.t. persónuafsl.)
Samtals kr 36000 af launum.

Niðurstaða: Sá sem vinnur svart og fær einhvern til að taka sendinguna úti gæti fengið 3 svuntur fyrir sama pening!

Það er þó gott að vera með allt á hreinu og enn betra að hafa frúna ánægða. Þetta er sérstakt "kvennasnið" eins og sjá má hér:

www.immersionresearch.com/products-page/...mens-specific-skirt/

Sjáumst í Breiðafirði,
Kv. GHF.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum