Já Guðni Páll -- það var skerjaskokk (rock hopping), sundveltur (wet reentry) og lensa sjálfur hálffullan bát í öldunni, óvæntar veltur í vindi og öldu, björgun manns úr axlarliði í sjó og í þröngum aðstæðum með fyllum.
Þetta er samt bara færni, sem má æfa.
Það er verra að ef þú snýrð ekki upp á bolinn um 180 gráður og skoðar ástand hópsins sem þú ert "leader" fyrir í hálfa mínútu, eða kannar ekki í fjörunni hvort allir eru í vestum og ekki með flogaveiki, eða hvað amma Elísabetar Englandsdrottningar hét þá gætir þú verið fallinn á prófinu.
Þetta er yfirlit bara svo þú getir æft sjálfur.
Kveðja,
Gísli H. F.