Núna á föstudaginn, annan dag sumars, ættum við að fjölmenna í Elliðaárnar og hita rækilega upp fyrir ródeóið (sem verður haldið eftir 1 viku). Mæting hefur verið nokkuð rækjuleg undanfarið. Það eru allir komnir í frí úr skólunum og það fá allir frí á föstudaginn úr vinnunni á milli 12 og 14 til að bleyta pínu í sér og draslinu sínu. Engar afsakanir, allir að mæta og munið að Elliðaár ródeó gefur stig til íslandsmeistara, þannig að að skrópa er sama og að tapa.
Ég ætla allavega að æfa mig
Meistarinn kveður
Jón ÍM<br><br>Post edited by: jsa, at: 2007/04/18 00:06