Það er að bresta á með árshátíð siglingafólks og ræðara. 15. okt. í húsi ÍSÍ í Laugardal. Kostar 4200 kr. á mann. Innifalið er fínn matur og fordrykkur. Síðan verða verðlaunaafhendingar, gamanmál, ræður og fleira eins og við þekkjum frá uppskeruhátíðum okkar á liðnum árum.
Þetta er ætlað öllu siglingafólki, ræðurum, fjölskyldum þeirra og vinum. Börn innan 18 ára í fylgd með fullorðnum.
Húsið opnar kl. 19 með fordrykk og borðhald hefst kl. 20.
Undirrituðum var veittur sá heiður að vera fulltrúi Kayakklúbbsins í skemmtinefnd fyrir þetta ágæta teiti.
Það er von okkar að ræðarar mæti mjök..
..og skrái sig í netfangið sil@isisport.is
Ath. að það þarf að skrá sig fyrir 12. okt.
Seisei.