Ég kíkti á Eiðið áðan og þar voru þrír kappar að gera sig klára, þeir Guðni Páll, Gunnar Ingi og Lárus.
Vindmælir á Geldinganesi sýndi kl. 10, 15 m/s SA og hviður frá 18 upp í 25.
Um félagana má segja að "Fast þeir sóttu sjóinn og sækja hann enn .."
Ég vona að eftir hádegið geti konur þeirra sungið
" - og alli komu þeir aftur og enginn þeirra dó,
af ánægju út að eyrum hver einasta kelling hló."
Við fáum vonandi að heyra hér síðar, hvernig gekk.