Skemmtileg kynning

20 okt 2011 22:53 - 20 okt 2011 22:54 #1 by Gíslihf
Skemmtileg kynning was created by Gíslihf
Við Ólafur B. og Guðni Páll tókum að okkur kynningu í Laugardalslaug fyrir um 25 unglingar frá Laugarneskirkju í kvöld, svonefndan "Adrenalinhóp gegn rasisma". Sr. Bjarni og tveir unglingastarfsmenn voru með þeim. Það voru allir ánægðir og skemmtu sér vel nema sundlaugarverðirnir voru svolítið stressaðir.

Guðni Páll sýndi liprar veltur og tók nokkra í foræfingar.
Óli sýndi surfski-bátinn og ég var að vaða milli krakkanna og aðstoða þau við bátana.

Sum þeirra eru ekki sleip í íslenskunni og sum náðu varla upp úr mannopinu en aðrir voru of stórir í suma bátana - en sem sagt vel heppnað og gaman.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum