Austan gola og ágætis veður, 9 bátar á sjó og fínn róður í Kollafjörðinn. Egill róðrarstjóri stóð sig með prýði og góð kaffipása tekin við Arnarhreyðrið.
Prinsinn missti sig aðeins, eins og venjulega, við steinaskopp á Gunnunesinu og hinir horfðu góðlátlega á og biðu þolinmóðir
Þorbergur tók einhverjar myndir... og maður bíður bara eftir að fá þær hér inn.