Já þeir halda áfram að falla niður þessir blessuðu kayakmenn.
Í nýjasta þættinum í þáttaröðinni Bumbuflæði í magan sinn (Bomb flow magazine) fara ólátabelgirnir Freðjón Norðurkvistur (Fred Norquist) og Elvar Garðars (Evan Garcia) um víðan völl í lóðréttum vötnum norður ameríku. Með þeim slást í för nokkrar fallandi stjörnur í straumkayak heiminum og saman í leit sinni að láréttu vatni falla þeir niður hvað eftir annað.
En án þess að reyna að vera með leiðindi þá er mun hressara að horfa á kayakmenn falla niður en að silast um eftir marflötu láréttu vatni.