Týndur hengilás að gámi 2

29 nóv 2011 16:20 #1 by palli
Já-sæll. 12.500kall fyrir svona kerfislás.

EKKI taka þessa lása með ykkur takk. :angry:

Það er kominn nýr lás á gáminn.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

28 nóv 2011 23:40 #2 by palli
Þegar ég var að ganga frá eftir róður á sunnudaginn þá kom í ljós að geymslugámur 2 var ólæstur - engan hengilás að sjá.

Mikið var leitað og rótað í snjónum án árangurs. Á endanum fór Smári sem var þarna staddur í Húsasmiðjuna og reddaði lás til bráðabirgða svo ekki væri allt þarna opið. Lykillinn að þessum bráðabirgðalás er í skápnum fyrir ofan kaffivélina.

EF EINHVER KANNAST VIÐ AÐ HAFA TEKIÐ LÁSINN VÆRI GOTT AÐ FÁ HANN SEM FYRST TIL BAKA.

Ég redda svo nýjum lás í vikunni svo allir sem eiga báta þarna komist í fararskjóta sína :)

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum