Ég ætla að sitja heima í þetta sinn enda er ég að nota tímann til að rita sjóferðasögu mína og er nú kominn inn á Norðfjörð til Kaj félaga í þeirri sögu.
Ég hef grun um að fáir fari á sjó í dag - sumir þurfa að sleikja sárin og setja plástur á stoltið eftir gælur brimöldunnar við Gróttu í fyrradag - en það er nú bara partur af þessum pakka.
Vel að merkja, enginn hefur gefið skýrslu en þar voru eftir því sem ég best man:
GHF, Sveinn Axel, Guðni Páll, Stefán Snorri, Páll R, Hörður, Lárus, Ágúst Ingi, Gísli S Karls og Sigurjón.
Ég er mest hugsi yfir óþefnum sem var þarna norðan við rifið. Var það venjuleg skítalykt sem aldan var búin að reka á land frá einhverju frárennslisopi úti á sjó eða var þetta rotnandi þari, sbr. allar Fúluvíkurnar á Íslandi?
Fleiri óvanir ættu að birtasttil að þiggja slíkar æfingar eftir 2-3 vikur þegar daginn lengir og veður batnar.