Það voru 10 ræðarar sem mættu til leiks í dag og létur léttan úða ekki á sig fá og var haldið í átt að fjósaklettum, var landið þrætt með viðeigandi stoppum á grjótum og skerjum. Allskyns æfingar voru gerðar á leið okkar í átt að vinsælasta æfingasvæði Kayakklúbbsins. Þegar komið var í Fjósakletta gerðu menn lendingar æfingar og fóru uppa kletta og stukku niður aðrir voru í áratækni og hinir að leika sér einhvað. Skemmtileg æfing í dag og góð mæting gaman að sjá að þessar æfingar eru að skila sér.
plus.google.com/photos/11107859368005508.../5722822721501339857
Ræðarar. Maggi Svarti, Þóra, Klara, Snorri, Gísli k, Svenni Ambassador, Sigmundur, Egill, Perla kúla,
Guðni Páll