:)

25 apr 2012 18:41 #1 by Gunni
Replied by Gunni on topic Re: :)
Þetta verður bara gaman.
Lárus, Tannstöngull og Romany, er það ekki málið ?

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

25 apr 2012 18:31 #2 by Ingi
Replied by Ingi on topic Re: :)
Tek undir með Össuri. Það er hægt að vera með þó að maður viti að sigurinn sé ekki vís. Menn geta keppt við sjálfan sig ef því er að skipta. Ná betri tíma núna en síðast osfrv..
Það verður einhver tekin í nefið það er næsta víst B)

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

25 apr 2012 18:23 #3 by Össur I
:) was created by Össur I
Eins og allir vita er Vorhátíð okkar kayakmanna og -kvenna núna um helgina. Mig langar að hvetja alla ræðara sem og aðra velunnara að koma og taka þátt í þessari hátíð með okkur. Hápunkturinn er auðvitað 10km keppnin og væri gaman ef við næðum að slá aðsóknarmet svo ekki sé talað um einhver hraðamet. En róður í 10km keppninni er líka fyrir okkur sem langar að róa skemmtiróður með hóflegu keppnisívafi, keppa innbyrðis við aðra ræðara sem eru á sambærilegum fleyjum eða bara dóla en einn Geldingarneshringinn. Það væri líka gaman að sjá alla þessu grænlensku ræðara mæta með prikin sín og róa með þeim.
Ég skora hér með á félaga minn Einar Svein að mæta í 10km með þetta grænlenska prik sitt og taka mig í nefið eins og hann hefur svo oft gert áður í félagsróðrum :)
Hvet menn til að skora á hvora aðra.....koma svo drengir og stúlkur
Kv Össur

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum