Þessi nýja síða er eins og nafnið bendir til ætluð þeim sem vilja stunda kayakróður sem líkamsrækt. Róið er á föstum tímum og er öllum í klúbbnum velkomið að mæta með sinn búnað og róa með. Tímarnir miðast við að vera komnir á flot á tilteknum tímum. Ef fólk óskar eftir er hægt að hjálpa því með að setja upp æfingaplan en allir róðrar eru í raun æfingar.