Enn og aftur er gámur skilinn eftir ólæstur.
Átti leið í Grafavoginn í dag og ákvað að kíkja við og tekka á umgengni.
Allt virtist í góðu lagi þangað til ég gekk framhjá Gám 4. Þar vantaði lásinn á hurðina. Hann samt lokaður.
Lásinn ásamt lyklakippu sem mynd er af hér að neðan lá við hlið gámsins.
Eigandinn getur haft samband við mig í síma 660 7068 ef hann vill fá lyklana aftur.
Ítreka að svona á ekki að gerast. Við verðum að taka okkur á í þessum efnum
kv.,
Gísli Karls.