Lyklar að gám 5 fundust eftir róður í kvöld

17 ágú 2012 15:37 #1 by gsk
Eigandi lyklanna er fundinn. Hann hafði samband í morgun.

Vil minna félagsmenn á að það eru mikil verðmæti í formi kayaka sem við geymum þarna og það er ekki svo lítið mál ef einhver finnur lykla og kemst inn í geymslugám eða aðstöðuna okkar.

Sé ekki fyrir mér að neinu verði stolið, frekar að eitthvað verði skemmt jafnvel kveikt í.

Vill benda félagsmönnum á að þið geymið hlutina ykkar á ykkar eigin ábyrgð í gámunum.

Klúbburinn er ekki með tryggingar eða er skapabótaskyldur gangvart þjófnaði, skemmdum eða öðru.

Sjálfum finnst mér það óþolandi að svo oft komi upp að lyklar finnast við gámana eða það gleymist að loka aðstöðunni eða geymslugámnum okkar.

Sjálfur hef ég tamið mér að koma þarna við þegar ég á leið í Grafavoginn og lalla einn hring.

Biðla til félagsmanna að gera slíkt hið sama.

kv.,
Gísli K.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

16 ágú 2012 23:46 #2 by gsk
Hafið samband við mig í síma 660 7068

Kv.,
Gísli k.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum