Félagsróður 20.10.

20 okt 2012 17:36 #1 by Larus
Félagsróður 20.10. was created by Larus
Það var flott haustblíða i morgun i höfuðstöðvunum, agnarögn austangola og örlítið kalt, allavega nógu kalt til að flestar stjörnu hetjurnar völdu að sofa lengur og láta sig dreyma um vorið.
Átta ræðarar mættu og réru austur fyrir að Þerney sunnanverðri og þaðan var róið í Lundey, hún hringuð og land tekið á hefðbundnum stað suð-austan megin.
Eftir kaffistopp var róið að vestur enda Geldinganess og þaðan heim.
Ræðarar voru Ragnhildur, Eiríkur, Sigrún, þóra, Sigurjón, Katý, Gummi B og undirritaður.

lg

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum