Þessi fíni haustróður í morgun. 9 mættu: Lárus og Magnús sem fóru hringinn í kringum Gnes og Perla, Klara, Þorbergur, Guðmundur Breiðdal, Gunnar Ingi, Egill og undirritaður. Veður var eins og góðum sumardegi, smá regn og skyggni næstum því ekkert. Nokkrar öldur komust alla leið inn að vesturenda Geldinganess þar sem Gunnari Inga tókst með mikilli harðfylgi að láta eina velta sér ca 10m frá sæbörðu og þaravöxnu fjörugrjótinu. Gummi var fyrstur til vettvangs og var byrjaður björgunaraðgerðir þegar Lárus kom og tosaði heila klabbið úr allri hættu. Mjög prófessjónalt og vel gert. Þetta leit út eins og sviðsetning en var það víst ekki.
Magnús og Lárus héldu heim eftir þetta en hin kláruðu hring um Þerney með kaffistoppi bakvið gluggalausan kofa þarna í Eynni.