Ég ásetti mér að ná viðundandi tökum á butterfly veltu hægri og vinstri. það tókst svona la la.
En fyrir nokkrum árum voru kayakfólki boðið að koma og taka æfingar í aðal útilauginni eftir lokun á fimmtudögum ef ég man rétt. Þá voru að mestu leyti straumkayakmenn og konur sem höfðu aðallega áhuga á að geta velt sér hægri vinstri.
Eftir að innilaugin mikla kom til urðu mikil þáttaskil í veltutækni. Maggi og fleiri komu og í hvert skipti var komin ný veltutegund. Straumkayakfólki fækkaði og sjókayakfólki fjölgaði. Nú eru þarna menn sem kunna allar veltutegundir eða þvi sem næst. Allir geta lært veltuna og svo er hægt að halda áfram út í það óendanlega sýnist mér.
kk
Ingi