Félagsróður 5.jan 2013

05 jan 2013 22:58 #1 by Þóra
Fyrsti félagsróðurinn á nýju ári farinn í morgun, 10 ræðarar á sjó. Farinn var Viðeyjarhringur rangsælis. Það blés aðeins úr suðaustri á okkur sem var bara þægilegt á fyrri legg fyrir grillskálastopp en á þeim seinni blés aðeins framan í okkur. Fínn róður í góðum félagsskap. Þeir sem réru voru Klara, Ólafía, Páll R (fremstur), Egill(aftastur), Sigurjón, Þorbergur, Sveinn Axel, Þórólfur, Smári og undirrituð sem róðrarstjóri.
Gleðilegt nýtt kayakár
Þóra

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum