Félagsróður 12. jan

12 jan 2013 19:38 - 12 jan 2013 21:21 #1 by eymi
Replied by eymi on topic Re: Félagsróður 12. jan
Frábær róður í dag, veðrið eins gott og hugsast getur miðað við árstíma, blanka logn og smá undiralda á Sundunum.
Róið var vestur frá eiðinu, út með Geldinganesinu, þaðan út í Lundey og kaffipása tekin þar við skúrinn. Síðan var eyjan hringuð rangsælis og róin sama leið til baka heim í aðstöðu.
Sextán ræðarar mættir - Egill, Smári, Þorbergur, Þóra, Klara, Gunnar Ingi, Þorsteinn, Þórólfur, Sveinn Axel, Hildur, Eymi, Erna, Örlygur, Ragnar, Gummi Breiðdal og Páll Reynis :)

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

12 jan 2013 14:52 #2 by Þorsteinn
Takk fyrir fallegan róður. En erindið var að tilkynna um haldlagningu á ókunnri svartri kollhúfu karlmanns af innsta bekk í skiptigámi eftir róðurinn. Löglegur eigandi getur vitjað hennar og haft samband í síma 8928282.
Þorsteinn.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum