Félagsróður 16. feb

17 feb 2013 10:10 #1 by SAS
Replied by SAS on topic Re: Félagsróður 16. feb
Þetta er hættan við nafnakallið að einhvert nafnið gleymist. En þú ert kominn inn á listann núna. Ég taldi 12 nöfn í tvígang, svona er þetta :-)

kv

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

16 feb 2013 23:04 #2 by siggi98
Replied by siggi98 on topic Re: Félagsróður 16. feb
Var reyndar líka með þessum hópi :-)
Þetta var minn lengsti róður til þessa

k
Sigurjon M

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

16 feb 2013 21:55 - 17 feb 2013 10:08 #4 by SAS
Félagsróður 16. feb was created by SAS
12 byrjuðu í félagsróðinum í morgun. Maggi í sínum fyrsta róðri eftir axlaraðgerð, hóf róður og tók stuttan legg með okkur.
Aðrir sem mættu voru Þóra, Gunnar Ingi,Guðm.Breiðdal, Össi, Örlygur, Egill, Ragnar, Ágúst Ingi,Guðni, Sigurjón og undirritaður.

Við hófum róður austan megin G.nes, yfir Þerneyjarsund og þaðan yfir í Kollafjörð, þar sem við tókum kaffi á Arnarhreiðrinu. Síðan var stefnan tekin á vesturenda Lundeyjar, yfir í vesturenda Viðeyjar og suður fyrir. Stutt pása við Grillskálann, án þess að fara í land og síðan beint í höfuðstöðvarnar. Langur félagsróður að þessu sinni ca 20 km í A 6-10 m/s og við frostmark

kv
Sveinn Axel

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum