Lagt af stað í austurátt frá G. nesi kl 1000. Sólskin og logn til að byrja með og kannski smá frost, en NA stinningsgola á miðri leið að Leirvog. Vindurinn datt svo niður þegar við komum að landi. Þurftum að krækja fyrir þunnt ísskæni sem var landfast syðst í vognum. Notalegt neysluhlé í sólskininu og félagskap ábúanda þarna, sem var enginn annar en Smári, sem rær oft með okkur. Haldið heim í bongóblíðu en á móti útfallinu yfir kristaltæran vogin og sást greinilega til botns mestalla leiðina heim. Perla,Sigurjón og Einar Sveinn tóku smá æfingasessjón en Gummi B, Svenni, Össi, Klara, Dúi og ég komum okkur í land án þess að bleyta hárið að þessu sinni. Fínasti róður á Gvendardegi (skv Almanaki H.Í)
Ingi