Mætti um kl 10. þá voru tveir komnir á sjó. Tók einn hring um nesið og hitti einn sem var að leggja í hann. Margæsir í fjörunni að hvíla fyrir næst síðasta legg til Kanada. Kom í land um hádegið og þá var fjaran orðin svo löng að það var næstum jafnlangt að drösla sér upp á pall eins og róðurinn var. En það hafðist.
kv.
Ingi
plus.google.com/u/0/photos/1079951053218.../5870851460157639377