En hvað með að gera þetta sjálfur? Hef soðið saman ca 15 cm langa rifu á plastbát og gekk fínt. Nærð þér í alvöru hitabyssu, þrífur þetta, skerð e.t.v. smávegis plast úr cockpit kantinum innanverðum til að bræða í sárið - og kaupir bjór fyrir 10 þúsund kallinn
Gera þetta bara hægt og rólega og passa að hita ekki það mikið að allt fari að renna.
Sumir straumræðarar glóðhita málmnet (svona svipað og er í eldhús sigtinu þínu) og leggja yfir sárið þannig að það sígur inn í sárið og styrkir. Sennilega ekki nauðsynlegt í þessu tilviki.