Uppskeruhátíð SÍL er um næstu helgi, sbr. frétt á forsíðu.
Það væri gaman að sjá sem flest kayak-fólk, þetta eru skemmtileg kvöld og gaman að hitta fólk úr öðrum greinum siglinga.
Ég og Þóra ætlum að mæta og heyrst hefur að fleiri ræðarar séu að hugsa sinn gang, skipta út róðrargallanum og ullarfötunum eitt kvöld og skella sér í djammgallann.