Þriðjudagsrugl 29 okt

30 okt 2013 10:30 #1 by SPerla
Replied by SPerla on topic Þriðjudagsrugl 29 okt
Já og engin helvítis toglína ;)

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

29 okt 2013 19:54 #2 by Larus
Skíta austanátt var við höfuðstöðvarnar þegar menn mættu síðdegis, fimm kallar fóru út austanmegin á móti öldunni, allt var þanið og menn tóku vel á langleiðina út i Gunnunes þar var snúið undan og príðislens var í boði að enda Geldinganess.
Þar skildu leiðir vængáradrengirnir Svenni og Eymi heldu áfram kringum Viðey, Gummi Breiðdal, Sigurjón M og ég rérum í Fjósakletta og þaðan heim.

Þriðjudagsróðrar voru skapaðir til stuðnings Gísla hringfara 2008 og hafa haldist óslitið síðan, allir eru velkomnir svo fremi sem ræðari sé sjálfbjarga við flestar aðstæður og geti róið eins og andsk.... i tvo tima í myrkri og skilað sér heim.

lg
The following user(s) said Thank You: gudmundurs

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum