Félagsróður 22. febrúar

21 feb 2014 14:14 #1 by Klara
Replied by Klara on topic Félagsróður 22. febrúar
Það gætu orðið skemmtilegar og krefjandi aðstæður á morgun, austanátt 10 m/s ef spár ganga eftir. Oft hefur veðrið verið mun skárra en spár gerðu ráð fyrir í róðrum vetrarins þannig að við sjáum til í fyrramálið hvert haldið verður. Það er háflóð upp úr 11. Sjáumst hress í fyrramálið.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

20 feb 2014 10:47 - 20 feb 2014 10:49 #2 by Klara
Undirrituð hefur tekið að sér það vandasama verkefni að leysa Guðna Pál af sem róðrarstjóri næstkomandi laugardag.
Til að halda uppi heiðri Guðna Páls þá munum við róa hringferð, en hvort að við hringum Viðey, Þerney, Lundey eða Geldinganes kemur í ljós á laugardagsmorgun.
Veðurspáin er þokkaleg, hiti yfir frostmarki og vonandi verður ekki meira en 6-8 m/s. Þó eru vindaspár nokkuð misvísandi þannig að þetta verður allt að koma í ljós.

Ef gjaldkeri okkar telur rétt þá er þetta áttundi róður ársins og það væri gaman að sjá sem flesta á sjó.

Klara.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum