Róður í kvöld 8. maí

08 maí 2014 09:52 #1 by Siggisig
Næsta laugardag verður Vorhátíð klúbbsins eins og lesa má um hér á síðunni þannig að félagsróður er ekki á dagskrá fyrr en næsta fimmtudag, 15. maí þegar sumartími félagsróðra hefst. Fyrir þá sem langar að taka forskot á sumartímann er upplagt að skella sér í róður í kvöld. Undirritaður ætlar allavega að róa og að sjálfsögðu er allir velkomnir. Mæting er 18:30 og hvert verður farið ræðst af samsetningu hópsins.

Sigurjón Sig.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum