Félagsróðrar hafa nú færst yfir á fimmtudagskvöld, mæting er kl. 18:30 og sett á flot stundvíslega kl. 19:00.
Spáð er ágætum aðstæðum og kjörið tækifæri er fyrir alla að mæta, sérstaklega þá sem eru að taka fyrstu áratökin á árinu.
Vindur er að sunnan með um 5 m/s, sjávarhiti er um 8°C og lagt er af stað á háflóði kl. 19.
Róðrarleið verður ákveðin á staðnum með tilliti til þátttakenda.
Egill