Hörpuróðurinn

21 maí 2014 11:21 #1 by bjarni1804
Hörpuróðurinn was created by bjarni1804
Heil og sæl.
Næst á ferðadagskrá Kayakklúbbsins er hinn árlegi Hörpuróður, frá Skarfakletti og inn í Reykjavíkurhöfn. Tilefnið er hátíð hafsins (Sjómannadagurinn) og tækifæri til að kynna kayaksportið. Róið er laugardaginn 31. maí, það er um aðra helgi.

Þessi ferð hefur verið þeim, sem ræður veðri og vindum mjög þóknanleg, því það hefur alltaf verið ákjósanlegt veður í þessum róðri og stundum alveg afbragðs. Í upplýsingum, sem láku til mín frá Veðurklúbbi Grundar kom fram að þetta árið verði aðstæður með allra bestasta móti, ef bátar eru vel bónaðir.

Nánari upplýsingar munu birtast hér á Korkinum eftir helgi.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum