Það var frábært að fá "með okkar augum" í heimsókn sl. miðvikudag. Það mættu fjórir fulltrúar þeirra með þau Steinunni og Skúla fremst í flokki, ásamt myndtökumanni og framleiðanda. Við byrjuðum á spjalli og viðtali og síðan tókum við stuttan róður með Steinunni og Skúla. Það voru Andri, Gummi Breiðdal, Gísli og Klara sem tóku á móti þeim og höfðu umsjón með heimsókninni. Það var ekki betur séð en að allir hafi skemmt sér konunglega, sérstaklega þótti gaman að fá að hvolfa Andra, sem eins og venjulega þótti ekki leiðinlegt að fá að taka nokkrar veltur.
Það eru nokkrar myndir frá heimsókninni á facebook síðu klúbbsins og síðan verður þátturinn sýndur seinna í sumar. Þá kemur í ljós hvort að við höfum einhverja sjónvarpshæfileika.