Dani reynir við hringinn

04 jún 2014 19:51 - 04 jún 2014 20:04 #1 by Reynir Tómas Geirsson
Ég vil láta ykkur vita að Nicholas Geo Uldbjerg hætti við og er á leið tilbaka til Danmerkur með ferjunni frá Seyðisfirði. Þetta er greinilega ágætur og áræðinn ræðari, en hér skipti réttur undirbúningur máli og hann hefur með þessu tekið rétta ákvörðun. Ég hef fylgst með ferð hans úr fjarlægð og sjálfur var hann í sambandi við Guðna Pál.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

03 jún 2014 22:18 #2 by Guðni Páll
Síðustu skilaboð frá Nicholas voru þau að hann væri hættur og ætlaði að skila sér til Hafnar eftir 2 daga róður á Suðurströnd Íslands. Ætla að heyra getur í honum í kvöld, leyfi ykkur að fylgjast með.

kv Guðni

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

03 jún 2014 21:41 #3 by siggi98
Replied by siggi98 on topic Dani reynir við hringinn
Held reyndar að hann sé hættur við það voru síðustu fregnir.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

03 jún 2014 20:00 #4 by Icekayak
Þessa dagana er Geo Uldbjerg að leggja í hringferð á kayak sínum, Geo réri hringinn í kringum Danmörk í fyrra. Kallinn er með heimasíðu, þar sem einhverjar fréttir verða lagðar inn eftir hentugleik.
www.uldbjerg.com/

Með kveðju frá Danmörku
Fylkir Sævarsson
www.icekayak.com

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum