10 áhugaverðustu sjókayak áfangastaðir

16 jún 2014 18:19 #1 by Gíslihf
Greinarhöfundur er greinilega með slóðir ferðaþjónustuaðila sem bjóða upp á kayakferðir.
Ekki er víst að þjónustan hjá Magga eða Ísfirðingum komist á blað þarna.

Ef það er sambærilegt þá er um að gera að senda skilaboð til höfundar og annarra.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

16 jún 2014 16:25 #2 by Andri
Gaman að þessu. Bíð samt eftir því að einhver víðförull ræðari taki saman 10 áhugaverðustu sjókayakstaði á Íslandi. Væri gaman að fá einhverjar tillögur að því hvaða staðir það gætu verið, sjálfur hef ég ekki róið nógu víða til að geta sett saman langan lista.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

16 jún 2014 16:16 #3 by Orsi
Held að íslensku svæðin hljóti að vera of köld til að greinarhöfundur treysti sér til að setja þau á akkúrat svona lista. Eða að hann hafi ekki kynnst þeim. Nema hvorttveggja sé. Einnig gæti spilað inn í að íslensku svæðin eru ekki alveg "reassuringly close to civilisation," eins og t.d. Lofoten lýsingin ber með sér.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

16 jún 2014 15:08 #4 by Ingi
www.theguardian.com/travel/2008/jul/01/c...ngandkayaking.europe

Mér finnst nú að það vanti Vestfirðina á þennan lista. Austfirði og jafnvel fleiri staði hér.
Hvað finnst ykkur ? Hafa klúbbfélagar róið á þessum stöðum?

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum