féló 26. júní

28 jún 2014 10:02 #1 by SPerla
Replied by SPerla on topic féló 26. júní
mjög góður róður, alltaf gaman að láta öldurnar vagga sér :)

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

27 jún 2014 08:41 #2 by Bergþór
Replied by Bergþór on topic féló 26. júní
Ljómandi róður. Vindar blésu og létu ræðara finna fyrir áhrifum sínum. Þannig æfðist að halda stefnu og halda hópinn. Í upphafi var brýnt fyrir fólki að „ef eitthvað færi úrskeiðis“ skyldi hópast saman og mynda fleka. Þetta æfðum við. Hefði verið fróðlegt að æfa þetta síðar í róðrinum þegar þreyta var farin að gera vart við sig.
Glimrandi róður og skemmtilegur félagsskapur.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

26 jún 2014 22:31 #3 by Orsi
Replied by Orsi on topic féló 26. júní
Það var félags-róður í kvöld og mættu 16 manns. Við vorum nærri tvo tíma á sjó í viðstöðulitlum róðri og kalla ég það bara gott.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

25 jún 2014 17:11 - 25 jún 2014 22:53 #4 by Orsi
féló 26. júní was created by Orsi
Það er félags-róður á morgun í skítaveðri. Allir að mæta.

Róið verður sunnan Geldinganess og tekinn Þerneyjarhringur réttsælis með kaffistoppi í kaffistofunni að loknum róðri.

Það má reikna með krefjandi sjólagi og mun reyna mjög á jafnvægið í andstyggilegum hliðarvindi. Vegalengd: 10,6 km. Allir að mæta.
Attachments:

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum