Óska eftir gömlum bátum - allt kemur til greina

04 maí 2010 09:21 #1 by ha66i
Ég er að leita eftir gömlum bátum til kaups fyrir hönd Siglingaklúbbsins Drangey á Sauðárkróki. Þetta er klúbbur sem við stofnuðum á síðasta ári og við erum að byggja upp aðstöðu hér á Króknum fyrir siglingar og erum komnir með nokkuð af seglbátum.

Við viljum endilega kynna fyrir krökkum og unglingum allar tegundir af siglingum og því leitum við eftir því að kaupa Kayaka fyrir klúbbinn.

Allt kemur til greina, bæði straumbátar og sjókayakar.

Allar ábendingar um aðila sem gætu legið á bátum sem ekki hafa verið í notkun lengi og eru ekki líklegir til að blotna á næstunni eru einnig vel þegnar.

Með fyrirfram þökk,
Hallbjörn Björnsson
Sími 862 2539
E-mail: habbi@orginalinn.is

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum