Kayakvörur og kayakar hjá Gúmmíbátum & Göllum

19 apr 2011 16:43 - 19 apr 2011 16:46 #1 by gummibatar
Sæl öll,

Við erum komnir með slatta af kayakvörum inn í nýju búðina okkar. Að sjálfsögðu verðum við áfram með GUL Shadow þurrgallan okkar. Lækkum hann aðeins þetta árið í 64.900kr.

Erum með ansi flott kayakvesti frá HIKO sem þið ættuð að kynna ykkur. Förum einnig að taka inn Dagger Expediton kayaka og Sit-On-Top. Betri kjör ef pantað er strax.

Einnig Palm Alutian Expediton galla m/ hettu. Góður séns á flottu verði fyrir þá sem taka galla í forpöntun. Verða til afgreiðslu í maí úti.

Um að gera að láta okkur vita hvað þið viljið að við höfum til hérna á klakanum. Það er besta leiðin til að gera góða búð handa öllum.

Erum alltaf með viðgerðarþjónustuna á sínum stað.

Kveðja,
Leifur og Tommi
Gúmmíbátar & Gallar / Sjósport
S: 571 1020
www.gummibatar.is
Attachments:

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum