Takk, Jói. Var einmitt að skoða síðuna og gott að vita að þetta eru góðir gallar. Og nú er ekki lengur auglýst eftir þurrgalla á þessum þræði. Nýr galli fékkst fra Skotlandi LOMO drysuit
Sæll Sævar,
Datt í hug að benda þér á þennan hér. Ég keypti mér svona galla fyrir tæpum tveimur árum síðan og er mjög ánægður með hann. Latex sokkar og túttur á hálsi og úlnliðum, léttilás (relief zipper) og "göng" fyrir svuntuna.
Lomo er skoskt merki og þeir eru mjög almennilegir við að eiga. Ég var búinn að leita lengi að boðlegum galla sem ekki kostaði handlegg.