Verðlaunahafar 2018Hálfmaraþon 2018 gekk aldeilis vel fyrir sig, engin afföll urðu á leiðinni og einu verk Björgunarsveitarinnar snérust um að losa sjávargróður úr stýrum einhverra báta. Björgunarsveitin var með góða yfirsýn yfir alla ræðara og við Ingi stóðum vaktina í tímatökunni og bökuðum svo pizzur á methraða sem runnu ljúflega oní keppendur og aðdáendur þeirra. Til að stytta okkur stundirnar á meðan við biðum eftir að keppendur kæmust í mark hljóp hálfnakið fólk sjálfviljugt í sjóinn og mátti litlu muna að stórslys yrðu þegar kayakarnir komu svo á svakalegri siglingu inn marklínuna á milli allra hausanna. :unsure:

Sú skemmtilega nýlunda var hjá klúbbnum að allir keppendur fengu medalíu og voru þeir eftirfarandi:

 

Ferðabátar, konur:
1. sæti: Björg Kjartansdóttir á Epic V8 með vængár á tímanum 2 klst. og 48 mín.
2. sæti: Unnur Eir á Lettman með euro ár á tímanum 2 klst. og 58 mín.

Ferðabátar, karlar:
1. sæti: Ólafur B. Einarsson á Wave Seabird með vængár á tímanum 2 klst. og 19 mín.
2. sæti: Gunnar Ingi á Valley Nordkapp með euro ár á tímanum 2 klst. og 43 mín.
3. sæti: Páll Reyniss. á Valley Q með grænlenska ár á tímanum 3 klst. og 1 mín.

Keppnisbátar:
1. sæti: Gunnar Svanberg á Epic V8 Pro með vængár á tímanum 2 klst. og 27 mín.

Meðfylgjandi er mynd af keppendum og sigurvegurum hálfmaraþons Kayakklúbbsins að lokinni drengilegri keppni. Aðstæður voru krefjandi svo aðeins þeir bestu létu sjá sig í þetta skipti.

Keppnisnefnd þakkar keppendum, Björgunarsveit Hafnarfjarðar og öllum sem komu að þessari keppni kærlega fyrir frábæran dag.

Haustkveðja Helga, Ingi og Tobbi.