Halft marathon Epic

Mikill keppnisandi var hjá þátttakendum hálfmaraþonsins 2019 sem hófst rétt uppúr kl 10 þann 21. September.

Aðstæður voru eins og búast má við hér á landi smá austanvindur og frekar hlýtt miðað við að komið er að haustjafndægri. Lensið hjálpaði til við að ná góðum tíma á fyrsta legg að Gróttu en að sama skapi á móti á leggnum frá Gróttu og að Örfirisey.

Sjávarstaða var eins og hún gerist best þ.e. hásjávað og keppnin fór að mestu fram á liggjandanum.

Björgunarfélag Hafnarfjarðar var mætt á staðinn um hálfníuleytið og voru þeir með 8 manns og þrjá hraðskreiða og lipra báta til að gæta keppenda.

Haft var samband við Reykjavíkurhöfn og þeir vissu um ferðir keppenda og sáu til þess að umferð um sundin tók tillit til keppenda. Allavega sást hvalaskoðunarskip taka mikla sveigju til að fara aftur fyrir einn ræðarann.

Keppendur skiptust í tvo hópa og kom fyrri hópurinn á fleygiferð í Gróttu á sirka 40 mínútum og sá seinni á tæpum klukkutíma. Grótta var óárennileg í rauðabítið um morguninn en var byrjuð að slétta aðeins þegar fyrstu menn hálfhringuðu hana og fengu austanáttina í fangið og sauð að keipum alla leiðina að Örfirisey en slétt þaðan og í mark.

Allir keppendur luku keppni með sóma og eiga mikið hrós skilið fyrir dugnaðinn og eljuna. Allir keppendur fengu verðlaun að lokinni keppni og voru þetta inneignir í Garminbúðinni, GG sport, klipping frá Skuggafalli, kvöldverður fyrir tvo hjá A. Hansen í Hafnarfirði og Gallery Fisk í Nethyl ásamt góðum gjöfum frá Veiðifélaganum Nóatúni.Þökkum við þessum fyrirtækjum kærlega fyrir stuðninginn og munum að sjálfsögðu beina viðskiptum okkar til þeirra í framtíðinni.

Keppnisnefndin fékk góða hjálp frá Bjarna sem mætti með skráningarblöð og hélt einbeittur utan um skráninguna. Helgi var líka mikil hjálparhella ásamt Gumma B, takk kærlega félagar, hefðum ekki getað þetta án ykkar hjálpar. Síðast en ekki síst kom Gísli með drónann sinn og við í keppnisnefndinni erum ekki þau einu sem bíðum spennt eftir að sjá myndirnar hans.

Takk fyrir skemmtilegan dag og til hamingju bæði sigurvegarar og allir keppendur, vel gert!

Úrslit í hálfmaraþoni:

Halft marathon 2019 Verðlaunahafar

Ferðabátar karla:

 
Röð Keppandi Bátur Heildartími (Grótta)
1 Ólafur Einarsson Epic V8 2.29.44 (46:38)
2 Þorbergur Epic X18 3.11.23 (55:24)
3 Sveinn Elmar Stirling 3.44.30 (1:00:36)
4 Leifur Þorbergsson Qayak 3.47.25  (58:07)

Keppnisbátar karla:

 
Röð Keppandi Bátur Heildartími (Grótta)
1 Fylkir Sævarsson Epic V10  2.33.16  (44:07)
2 Gunnar Svanberg  V8 pro  2.56.01  (48:51)