Og þá er fyrsti róðurinn á miðvikudagskvöld. Óhagstæðar aðstæður. Útfall á hæsta og Kári sendir mótmæli úr vestri. Þannig að þægindaramminn er þekktur; inn að Blikastaðakró.
Það veltur því á samsetningu hvað við gerum. Að gusa sér útá Þerneyjarsund er möguleiki. Og ná út á Höfða. Alveg til í það ef öðrum líður vel með það. Spáum í það.
Þetta verður NÆTUR róður. Hér hefst níunda róðrarsería Kayakklúbbsins og ég HLAKKA SKO TIL.
Ljós og læti. Flaska og biti. Sjáumst.