Viðey - næturróður

07 okt 2010 13:44 #16 by palli
Replied by palli on topic Re:Viðey - næturróður
ok ek

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

06 okt 2010 14:55 #17 by Gunni
Replied by Gunni on topic Re:Viðey - næturróður
ut vil ek

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

05 okt 2010 23:39 #18 by eymi
Replied by eymi on topic Re:Viðey - næturróður
Menn kasta bara fram dýrt kveðnum limrum!

farið um kletta kennda við fjósið
friðinn í Viðey þið kjósið
athygli vekur
orkuna tekur
og súludans vekur upp ljósið

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

05 okt 2010 23:33 #19 by Orsi
Replied by Orsi on topic Re:Viðey - næturróður
Hvað er mig að sjá, svo fölan, linan og hnípinn?
Lyft get ég hvorki ár né skeið.
Bleyti vart smérið, kenni ei keips, eða heyri kjöl skriða á fremsta hlunn.
Bátur minn fúnar og tóftin molast. Brókin er götótt og mig sjódraugur hrellir.

-En sjá! - þar ljósið friðar lýsir senn og fyllir brjóst vort nýjum anda.
Þar hverfur minn kúrhugi og ég yður segi:
við stefnum til sjávar og hornriða gleypum.
Blæs ég ryki af fornum grip og læt geisa gamminn mót stormi og stórsjó.
Með saltbragð í munni og augasteina þanda æði ég sem Ódysseifur
út á hafið æðisgengið.
Og eiri hvorki myrkri né ólgu.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

05 okt 2010 23:33 #20 by Þorbergur
Reykjavík mun þá öll ljóma.
Og heimsfrægir listamenn tóna.
Er Kayakmenn fara
að hræra í þara
og drekka sitt kaffi með rjóma.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

05 okt 2010 22:44 #21 by Rúnar
Replied by Rúnar on topic Re:Viðey - næturróður
Hvusslags, hva, þarf að yrkja fyrir róður?
er umsjónarmaðurinn óður?
Mæti ég? Ég ákvörðun fresta,
þar til þessi verður útnefnd sú besta.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

05 okt 2010 21:38 #22 by Össur I
Replied by Össur I on topic Re:Viðey - næturróður
Í næturróður stefni ég á að mæta
og vonandi róðrarandann kæta
í Viðey sjá friðarljósin himininn lýsa
ljósið sem okkur sjófarendum mun svo (um tíma) veginn vísa
látum nú kayakræðara áhorfendafjöldann bæta.

kv Össur

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

05 okt 2010 20:10 #23 by Orsi
Viðey - næturróður was created by Orsi
Niðurtalning er hafin fyrir næturróðurinn í Viðey. Það er ekki nauðsynlegt - bara skemmtilegt - að þátttakendur tilkynni þátttöku.

Samkeppni er um frumlegustu tilkynninguna. Hún þarf að vera ögn þjóðleg. Ekki skemmir að lita hana kímni heldur.

Verðlaunin eru kröftugt lófaklapp í Viðey. Það er ódýrt, þjóðlegt og öllum hitnar af því.


Nýliðar: Látið endilega sjá ykkur. Þetta er sérhannað að þörfum þeirra sem hafa ekki áður farið í næturróður.
Sjáumst. Nefndin.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum