Sjósund út í Viðey aðstoð

14 ágú 2011 18:41 #16 by GUMMIB
Sæl öll

Benedikt Hjartarson hjá SJÓR var að hringja í mig. Hann var að óska aðstoðar okkar kayakræðara við árlega Viðeyjarsundið sem er sund frá Skarfabakka í Viðey sumir synda báðar leiðir. Hann var mjög ánægður hvernig til tókst í fyrra og vill endilega fá okkur til að endurtaka leikinn.

Málið er bara að fá sem flesta þannig að endilega skoðið þetta og meldið ykkur.

Sundið fer fram á föstudaginn 19 ágúst og hefst kl. 17:30 gott er að vera mætt hálftíma fyrir ræs til að hitta stjórnendurna þ.e kl. 17:00.

Linkur á samskiptin frá í fyrra á korki kayakklúbbssins.

www.kayakklubburinn.is/index.php?option=...id=5368&catid=2#5368


Heimasíða SJÓR
sjosund.is/

og

Upplýsingar um sundið
sjosund.is/?page_id=805

Kv.
Gummi B.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum