Þetta árið var efnt til sex keppnisviðburða, fjórir á vegum Kayakklúbbsins, einn á vegum Kayakhallarinnar og svo einn á vegum kayakklúbbsins Sviða.
Nýjungar ársins:
Það sem kom skemmtilega á óvart var sprettróðrarkeppnin þar sem allir kepptu á eins bátum með eins árar, þar var mikill hasar og ljóst að þátttakendur höfðu mjög gaman af og að keppnin er komin til að vera.
Tæknikeppnin sem haldin var í Laugardalslauginni tókst einnig mjög vel, en þar var keppt á tveimur brautum í einföldum veltum, svigi milli hliða afturábak og áfram, áratækni og síðast en ekki síst þeirri áskorun að standa uppréttur í bátnum.
Keppnisnefnd Kayakklúbbsins vill þakka öllum þeim sem komu til aðstoðar eða voru innan handar á einhvern hátt.
Nú er keppnistímabili ársins lokið og niðurstaða komin í heildarstigasöfnun þeirra sem tóku þátt.
Fimm af sex keppnum geta gefið stig og uppskeru keppenda 2016 er :
Sviða-menn stóðu sig eins og hetur og úr varð þessi fína keppni og þegar upp var staðið mættu níu, tvæ konur og sjö karlar.
Veður var eins og best verður á kosið, en litlu mátti muna að sjávarföllin yrðu til vandræða, en stórstreymt var og á mörkunum að róa mætti fyrir innan Hrakhóla og svo var ansi mikill straumur út úr Lambhúsatjörninni.
Úrslit voru þessi: