Ferðadagskrá 2024
Ferðadagskrá 2024
25. apríl Álftanes-Hfj.
Erfiðleikastig: 1 ár
Umsjón: Örlygur Sigurjónsson
Mæting 10:00 við Búðaflöt Álftanesi og teknir 10-12 km.
4. maí Akranes
Erfiðleikastig: 2 árar
Umsjón: SPerla Thorsteinson & Natalía Bender
Nánari lýsing þegar nær dregur
15.-17. júní Flatey (útilega)
Erfiðleikastig: 3 ár
Umsjón: Örlygur Sigurjónsson
Nánari lýsing þegar nær dregur.
Laugard. 15.6. kl. 10.35
Þetta er 6-8 tíma dagur á sjó. Sjósetning í Stykkishólmi. Áning í Elliðaey og Bjarnareyjum. Áætluð koma í Flatey kl. 19.30.
Tjaldað á góðu tjaldstæði með vatni og WC. Hótel Flatey er opið til kl. 21 ef fólk vill hraða sér í kvöldmat þar.
Sunnud. 16.6.:
Þetta er 6-8 tíma dagur á sjó. En - fólk hefur val um að ljúka leiðangri hér. Þá er tekin ferjan til baka á Stykkishólm - en hún fer kl 19.
Hinn kosturinn er að róa norður í Flókalund. Þá er sjósetning kl. 11.30. Áning í Hergilsey, sögufrægri ey. Lent í Vatnsfirði um kvöldmatarleytið og tjaldað. Hægt að fara í heitu laugina stutt frá tjaldstæðinu eftir kvöldmat. Muna sundfötin.
Mánudagur 17. 6.
Sjósett kl. 16 og róið 7 km spotta suður í Brjánslæk og ferjan tekin kl. 18 og leiðangri lokið í Stykkishólmi.
Heildarvegalengd 65-70 km, 2 nætur í tjaldi, krefjandi róður á köflum. Panta þarf í Baldur ferjuna hjá Sæferðum, fram og til baka, hvort sem það er frá Flatey eða Brjánslæk, þannig að í nokkur horn er að líta í svona ferð. Allur viðlegubúnaður nauðsynlegur, kæyak í góðu lagi. Allt er þetta með fyrirvara um veður.
28.-30. júní Kálfshamarsvík eða Norðurfjörður (útilega)
Erfiðleikastig: 2-3 árar
Umsjón: Susanne Möckel & SPerla Thorsteinson
Önnur helgarferð á stuttum tíma fyrir allra hörðustu útilegukindurnar.
Nánari lýsing þegar nær dregur.
20. júlí Kjalarnes
Erfiðleikastig: 2 árar
Umsjón: Arnar Már Árnason
Nánari lýsing þegar nær dregur.
27. júlí Hvalfjörður
Erfiðleikastig: 1-2 árar
Umsjón: SPerla Thorsteinson & Natalía Bender
Nánari lýsing þegar nær dregur.
9.-11. ágúst Breiðafjörður
Erfiðleikastig: 3 árar
Umsjón: Lárus Guðmundsson
Nánari lýsing þegar nær dregur.
9. október Friðarsúluróður
Erfiðleikastig: 2 árar
Umsjón: Stjórnin
Árlegur viðburður í dagskrá klúbbsins. Róið út í Viðey og fylgst með þegar friðarsúlan er tendruð.
30. október Næturróður I
Erfiðleikastig: 2 árar
Umsjón Örlygur Sigurjónsson
Róið um sundin blá frá Geldinganesi. Nánar síðar
6. nóvember Næturróður II
Erfiðleikastig: 2 árar
Umsjón Örlygur Sigurjónsson
Róið um sundin blá frá Geldinganesi. Nánar síðar.
15. nóvember Næturróður III / tjald
Erfiðleikastig: 2 árar
Umsjón Örlygur Sigurjónsson
Róið frá Geldinganesi út í nærliggjandi eyju og tjaldað þar. Nánar síðar.
Nýjung: Róið á góða spá
Staður og stund fer eftir veðri og vindum. Fyrirvari á þær ferðir getur því orðið mjög stuttur